Fyrirlestraröð R&G
Lykiltölur í lífi barna

Næstu fimm fimmtudaga frá 28. maí til 25. júní stendur R&G fyrir fyrirlestraröð um Ungt fólk rannsóknirnar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Fyrirlestrunum verður streymt á netinu frá HR.

 

fyrirlestrarod-RogG-Á

Hlekkur á streymi

25. júní kl. 12:00

Dr. Ingibjörg Eva Þórisdóttir, sérfræðingur hjá R&G, mun fara yfir nýjungar á vef Rannsókna og greiningar sem ber heitið Lykiltölur í lífi barna. Um er að ræða opinn landsaðgang að nýjustu rannsóknum R&G, Ungt fólk 2020. En þar geta notendur nú fengið greinargott yfirlit yfir stöðu ýmissa þátta í lífi og umhverfi barna og ungmenna eins og hún var í febrúar síðastliðnum. Ingibjörg mun veita innsýn í notkun vefsins, hvernig hægt er að skoða niðurstöður fyrir landið í heild og vista upplýsingar af síðunni svo fátt eitt sé nefnt.

Dagskráin - 28. maí til 25. júní 2020

28. maí kl. 12:00

Svefn ungmenna
Erla Björnsdóttir og Margrét Lilja Guðmundsdóttir

4. júní kl. 12:00

Koffínneysla ungmenna
Álfgeir Logi Kristjánsson


11. júní kl. 12:00

Áhættu- og verndandi þættir í umhverfi ungmenna
Margrét Lilja Guðmundsdóttir

18. júní kl. 12:00

Andlega líðan ungmenna
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir

25. júní kl. 12:00

Lykiltölur í lífi barna – Staða og þróun
Ingibjörg Eva Þórisdóttir