Samstarfsaðilar

SAMSTARFSAÐILAR

Innlendir samstarfsaðilar                 

Samstarfsaðilar - 2Rannsóknir & greining hefur undanfarin ár verið leiðandi í upplýsingaöflun og rannsóknum á högum og líðan ungs fólks á Íslandi og þannig getað veitt þeim sem starfa að málefnum barna og unglinga haldgóðar upplýsingar. 
Rannsóknir & greining
er í nánu samstarfi við sveitarfélögin í landinu, ráðuneyti,  skóla og foreldrafélög, æskulýðssamtök og fleiri stofnanir. Mörg sveitarfélög hafa undanfarin ár stýrt forvarnarstefnu sinni í ljósi þeirra upplýsinga sem fyrir liggja árlega.


Erlendir samstarfsaðilar

Rannsóknir & greining er í samstarfi við vísindamenn víða um heim, m.a. við Columbia UniversityPenn State University og San José State University í Bandaríkjunum, King´s College í London og Karolinska Institutet í Stokkhólmi. 

Rannsóknir & greining er þátttakandi í European Knowledge Center for Youth Policy (EKCYP) og tengiliður Íslands við sameiginlegan netgagnabanka Evrópusambandsins
og Evrópuráðsins í málefnum  ungmenna http://www.youth-partnership.net/.  Gagnabankanum er ætlað að  vista upplýsingar um margvísleg málefni tengd
aldurshópnum 13 – 30 ára en það aldursbil er skilgreint innan Evrópusambandsins sem ungt  fólk.
Gagnabankinn var opnaður árið 2006 og er markmiðið með gagnaöfluninni að stefnumótunaraðilar í málefnum ungmenna í Evrópu hafi á einum stað aðgengi að samræmdum upplýsingum um málefni ungs fólks og hvernig staðið er að þeim í hverju landi fyrir sig.

Rannsóknir & greining leiðir verkefnið Youth in Europe  sem er á vegum European Cities Against Drugs (ECAD). Þetta er samvinnuverkefni  margra borga í Evrópu og hefur það að markmiði að vinna gegn eiturlyfjavandanum. Þær borgir sem taka þátt í verkefninu eru: Reykajvík, Helsinki, Osló, Riga, Jurmala, Liepaja, Vilnius, Kaunas, Klaipeda, Tallin, Pétursborg, Moskva, Arilje, Sófía, Búkarest, Mílanó og Istanbúl.


 

Tungumál


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica