Um Rannsóknir og greiningu

UM RANNSÓKNIR OG GREININGU


Rannsóknamiðstöðin Rannsóknir & greining hefur sérhæft sig í rannsóknum á högum
og líðan ungs fólks undanfarin ár og hafa rannsóknirnar vakið athygli langt út fyrir landsteinana, bæði til Evrópu, Bandaríkjanna og Asíu. Megináhersla R&G frá upphafi  hefur verið lögð á að afla gagna og vinna úr þeim annars vegar vísindagreinar og hins vegar hagnýtar upplýsingar fyrir fólk sem vinnur að málefnum barna og ungmenna.

Frá árinu 1992 hafa viðamiklar spurningakannanir verið lagðar fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla, sjá lista yfir kannanir hérna. Upphafsmaður þessara rannsókna
er Þórólfur Þórlindsson prófessor. Hann var um nokkurra ára skeið forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála og voru rannsóknirnar þá framkvæmdar af hópi félagsvísindafólks,
sem starfaði við þá stofnun.

Inga Dóra Sigfúsdóttir, félagsfræðingur, gegndi á þeim tíma starfi deildarstjóra rannsóknardeildar Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála og hafði yfirumsjón með gerð kannana.  Árið 1997 vék Þórólfur úr starfi forstöðumanns stofnunarinnar. Um svipað leyti var áherslum í starfi hennar breytt á þá lund að aðaláhersla var nú lögð á prófagerð og fleira er að samræmdum prófum snéri. Inga Dóra tók á þessum tíma að sér að framkvæma úttekt á grunnvísindastarfi fyrir Rannsóknarráð Íslands og menntamálaráðuneyti.

Haustið 1998 leitaði forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála til Ingu Dóru og óskaði eftir því að hún tæki við stjórn fyrrgreindra rannsókna á stofnuninni eða tæki yfir gagnabankann í þeim tilgangi að framkvæma slíkar rannsóknir annars staðar. Forstöðumaðurinn kvað fjölmarga leita til stofnunarinnar um úrvinnslu gagnanna, en taldi að siðferðislega gæti RUM ekki orðið við þeim óskum, þar sem þar væru engir af höfundum gagnanna starfandi.

Úr varð að Inga Dóra tók gagnabankann yfir og stofnaði sjálfstæða rannsóknamiðstöð, Rannsóknir & greiningu. Rannsóknir & greining hefur starfað allt frá árinu 1999 og sinnt fjölmörgum verkum fyrir ráðuneyti, sveitarfélög og stofnanir. Út hafa komið bækur á vegum rannsóknamiðstöðvarinnar, viðamiklar skýrslur auk þess sem fjölmargir fyrirlestrar hafa verið fluttir um málefni ungs fólks.

Ljóst er að þörfin fyrir upplýsingar er brýn. Þá skipa rannsóknir nú æ mikilvægari sess við stefnumótun á hinum ýmsum sviðum og rannsóknafólk á sviðinu er í auknum mæli kallað til ráðgjafar þegar taka þarf afdrifaríkar ákvarðanir innan fyrirtækja og stofnana á opinberum vettvangi. Jón Sigfússon er framkvæmdastjóri Rannsókna & greiningar og hefur verið það frá árinu 2002.

Rannsóknir & greining hélt upp á 10 ára starfsafmæli sitt 12. mars s.l.og af því tilefni
var haldin afmælishátíð í Háskólanum í Reykjavík  að viðstöddum forseta Íslands, menntamálaráðherra og fjölda annarra góðra gesta.
   

 

Um R&G


 

Tungumál


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica